Fyrsta færsla. Bylting Byltinganna, Bylting lífsins.

Þó það hafi farið hljótt þá hófst Bylting Byltinganna, Bylting Lífsins formlega einn fallegan vordag, á föstudegi klukkan 17.00, með fyrsta fundi í byltingarráðinu við eldhúsborðið heima hjá mér.  Mættir voru ég, og ég, síðan ég og aftur ég. 

Það vildu fleiri mæta, alveg satt en á bak við allar byltingar er egó og því var aðeins ég mættur.  Fámenni í upphafi eykur líka líkur á einarðri ákvarðanatöku og minnkar líkur á klofningi í fyrstu skrefum byltingarinnar.  Víti sem þarf að varast, en  íslenska Andófið sækir mjög í, öðrum til lærdóms. 

Á fundinum var ekki skrifuð fundagerð en ég man að 2 mál voru á dagskrá.  

Það fyrra var, á að stofna bloggsíðu um Hreyfingu lífsins, fyrst að hugmyndafræðin var í höfn???  

Það seinna, Kall barst sem krafðist svars.

 

Fyrra málið var afgreitt einróma eftir enga umræðu, Nei, ekki tímabært, það var jú vor og nóg annað að gera.

Erfiðara var að segja Nei við Kallinu, því svar við Kalli er jú lykilforsenda framtíðar barna okkar.  Að segja Nei var bein ávísun á þögn, því sá sem gagnrýnir, sem ég hef gert svikalaust á átakabloggi mínu, en segir Nei við Kalli, hann er ekki lengur marktækur, margfalt verri en nokkur sá sem gagnrýndur er harkalegast vegna þjónkunar við völd og auðræði sem eirir ekki samfélagum fólks í valdagræðgi sinni og hroka.

Nei kom því ekki til greina, hvað sem jákvætt svar við Kalli hefði þýtt, þá gat það ekki verið verra en þögnin, sú þögn sem skapast þegar maður hefur ekki sjálfur sannfæringu fyrir orðum sínum.  

Nei, hefði þýtt að fyrsti fundur Byltingar lífsins hefði um leið verið sá síðasti.  Nei var því ekki valkostur.

 

Sem var svo augljóst að það þurfti ekki að ræða.  Eina umræðan var ein stutt setning, sögð í hálfum hljóðum, "guð hjálpi mér, í hvaða vitleysu hef ég komið mér".

Fundinum var slitið og Bylting Byltinganna, Bylting lífsins hófst.

Flóknara var það nú ekki.

 

Kveðja að austan.  (já, ég kann ekki annan frasa, næsti kemur þegar hann kemur).

 

 

 

 

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Það fylgir oft fámennum hreyfingum sem enginn veit af, skortur af umræðum og eins er lítil þörf á upplýsingagjöf. 

Þess vegna nýti ég athugasemdarkerfið til að spjalla um efni pistlanna, vísa í linka eða annað sem mér dettur í hug.  

Þessi fyrsti pistill virðist ekki mikill bógur, en hann er samt stórmerkilegur, því hann er upphaf.  Upphaf sem eitthvað fylgir í kjölfarið á.  Skortur á upphafi er ein stóra skýring þess að ekkert tekst hjá fólki sem ætlar sér að breyta, bæta, bylta, jafnvel sjálfu þjóðfélaginu.  Eða bjarga sjálfu lífinu eins og markmið Hreyfingar lífsins er.

Án upphafs er enginn endir.  

Endir sem við getum kallað takmark, jafnvel lokamarkmið.  Nú, eða bara endir.

Sá sem veit ekki endinn er gjarn á að villast, hann þekkir ekki leiðina því hann veit ekki hvert hann stefnir.

Villuna upplifum við sem klofning, deilur, tilgangslaust þrast, eða stefnu út í hött, eitthvað sem hrjáir mjög það fólk sem vill fella valdið, eða minnsta kosti fá leiðréttingu sinna skulda.

Bylting lífsins á sér lokatakmark, Líf, líf handa börnum okkar, líf öllum börnum til handa, líf sem er þess virði að lifa, fallegt líf. 

Þess vegna mun Hreyfingin aldrei klofna, þess vegna veit hún alltaf hvað hún á að gera.

Því aðferðafræði lífsins er mjög einföld.  Fyrst er upphaf, svo er næsta skref tekið.  Og svo næsta og svo næsta, og svo næsta og svo næsta. 

Og næsta.

Ekki hef ég tölu á þeim skrefum sem tekin hafa verið en ég veit að næsta skref er að setja inn færslu 2, skýrsla um Kallið og hvernig til tókst að svara því.

Færsla 3 er svo stuttleg samantekt á lykilpistlum sem marka upphafið af hugmyndafræði lífsins.

Færsla 4, sem verður skráð á morgun, er síðan nánari útlistun á lykilhugtökum Byltingar lífsins.

Færsla 5 er svo falin í spori tímans, verður skráð þegar hún verður skráð.

Sumt er ekki flókið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.8.2012 kl. 10:09

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

"guð hjálpi mér, í hvaða vitleysu hef ég komið mér"

Rakel Sigurgeirsdóttir, 30.8.2012 kl. 00:56

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Þetta var ekki alveg orðrétt, það vantar orðið "helvístis" á undan vitleysu en líklegast kannast allir sem svara Kalli við þessa hugleiðingu.

Takk fyrir innlitið Rakel.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.8.2012 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hreyfing lífsins.

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Í upphafi var orðið.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 360

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband